27.12.2008 | 11:05
Dansað
![]() |
Gömul en létt á fæti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
25.12.2008 | 22:09
Jólin búin

Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
23.12.2008 | 16:57
Friður
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.12.2008 | 10:20
Það sýður oft upp úr hjá mér
Sem fyrrverandi rauðka, lágvaxin og þéttholda með ótrúlega samasafnaða orku innra með mér þá lendi ég oft í því að upp úr sjóði hjá mér. Ég þessi litla miðaldra kona lyfti þá hnefanum á loft, bít í tunguna á mér, stappa niður fæti, losa tunguna frá tönnunum og les frá mér galdraþulu á óskiljanlegu máli. Mér verður yfirleitt ekkert ágengt með þessum látum í mér nema kannski að mér er sagt að taka pokann minn og hysja mig úr húsi (sbr. kjaft minn við fyrrverandi vinnuveitanda, tek samt fram að hann fór miklu fín- og kurteisislegra í það að segja mér upp en ég lýsi hér að framan). Sama gildir þegar ég rýk til og krefst þess að rétti mínum sé sinnt, veifi ég hnefa þá uppsker ég herör á móti og allt fer til andskotans og enginn nær sátt.
Ég væri alveg til í tusk við svona eina til tvær löggur svona til að rifja upp gamlar minningar frá mótmælatímum mínum þegar ég var raunveruleg rauðka, bæði til hárs og trúar. En þær (löggurnar) væru fljótar að snúa mig niður meðan gargið GAS GAS hljómaði í eyrum mínum. Ég hef ekki heilsu nú til dags til að vera svona róttæk, en ég get galdrað og hrært í potti fullum af galdraseyðum og gef ég Evu nú minn galdrastyrk svo réttlætið nái fram að ganga, að jafnvægi náist í heiminum og að engar stórar styrjaldir byrji vegna banka- og fjármálahruns um allan heim, en ég er hrædd um að svo gæti orðið. Orka reiðinnar er sterkasta vopn í heimi og fer um heiminn sem Ragnarrök.
![]() |
Óttast að uppúr sjóði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 17:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.12.2008 | 22:12
Mistök á mistök ofan
Það er svo auðvelt að biðjast afsökunar og halda áfram sama leiknum. Mér er skítsama þó svo ég tapi einhverju á áhættufjárfestingum í peningamarkaðssjóðum, ég tók þá áhættu vits vísandi um að tapið gæti orðið meiri en gróðinn. En mér er ekki skítsama um eldra fólk og fólk með einlæga trú á því að það sé verið að leiðbeina því í rétta átt, það á meira skilið en afsökunarbeiðni, það á að fá peningana sína til baka frá ríkisstjórninni sem ábyrgðist þessa banka en settu þá síðan á hausinn svo hún kæmist undan ábyrgðinni.
Hvernig er það að vera manneskja föst í vef lygarinnar? Ekki góð tilfinning að mínu mati, því lygar fæða af sér ótta. Hver hefur ekki einhverntímann logið og fundið fyrir þessari óþægilegu tilfinningu í iðrunum? Fáir held ég þó svo flestir beri fyrir sig 100% heiðarleika alltaf um alla eilífð.
Hvítflibbaglæponarnir eru hættulegri en þeir snöggklipptu og tattúveruðu, þá getur maður forðast en ekki manninn í hvítu skyrtunni með svarta bindið.
Leiðréttingu en ekki afsökun.
![]() |
NBI og Landsvaki viðurkenna mistök |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.12.2008 | 23:48
Hnerri
![]() |
Hnerrandi kynlíf? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
21.12.2008 | 18:49
Lækkun
![]() |
Ólafur Ragnar fer fram á launalækkun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.12.2008 | 14:44
Hún
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.12.2008 | 11:51
Innri endurskoðun
Eða innhverf íhugun. Ég býst við að það sé erfitt fyrir fólk með einhverja siðgæðisvitund að sitja á endurskoðunarstól og vera sífell með hjartað í buxunum. Ég vil taka fram að ég er ekki að deila á persónu Brynjólfs Helgasonar þar sem ég þekki hann ekki af eigin raun. Samt er sú vissa innra með mér að ýmislegt óhreint sé í pokahorninu og að ýmislegt sé búið að tæta í burtu af þekkingu/upplýsingum um það sem hefur verið að gerast í bankanum sl. ár.
Ég á erfitt með að trúa að við hinir almennu borgarar komist nokkurn tímann að hinu sanna í málinu. Mér skilst að sumir fyrrverandi stjórnmálamenn sem sitja sem fastast í gráa steinkumbaldinum búi yfir upplýsingum um ýmsa háttvirta menn og konur sem gætu orðið þeim að falli og þess vegna þegir það fólk. En hvað veit ég, ég les fréttamiðla og finn á eigin skinni þær breytingar sem eru að gerast í okkar þjóðfélagi.
![]() |
Innri endurskoðandi óskast |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.12.2008 | 14:01
Kemst ekki inn
Ég ætla mér næsta haust að sækja um í HÍ. Ég missti atvinnunina í samdrætti í vor og ákvað að klára það sem ég ætti eftir af stúdentinum (það er búið að fella niður aldursundanþágu) og halda síðan áfram svo ég ætti auðveldara með að fá vinnu. Ég er ekki tilbúin til þess að leggjast í kör og gera ekki neitt, þannig verð ég bara baggi á þjóðfélaginu sem núna er að skera niður hjá láglaunafólki, öryrkjum og öldruðum.
Það þarf að skera niður svo að ríkið geti haldið áfram störfum þ.e. að ráðamenn geti haldið áfram að borga sér fín laun. Það þarf líka að fría hina nýríku sem hafa komið þjóðinni á hausinn (mér er sama þótt það sé heimskreppa) og komið peningum sínum fyrir í skattaparadísum. Vafalaust er þetta eina leiðin í dag skv. ríkisstjórninni, þau sem stjórna henni eiga svo bágt greyin.
Á öll þjóðin að fara á kúpuna. Þarf hér að rísa braggakerfi að nýju - við getum svo sem notað hálfkláruðu húsin hér og hengt lök fyrir hurðar og horft upp í steinullina, það þekki ég frá fyrri tímum og eru ekki nema 14 ár síðan sá kafli var í lífi mínu og ég þurfti að berjast fyrir lífsgæðum dóttur minnar sem var fjölfötluð, langveik og ekkert beið hennar nema dauðinn í hálfkláruðu húsi.... Kannski þessvegna get ég fundið til með Þorgerði Katrínu þegar ég les á forsíðu DV að hennar dóttir 4ja ára gömul hafi greinst með æxli í heila, því veikindi fara ekki í manngreinaálit. Ingibjörg Sólrún á líka samhyggð mína vegna þeirra veikinda sem hún hefur gengið í gegnum. En ekkert af þessu afsakar hvernig ríkisstjórnin hefur ráðskast með þjóð sína, að hún hafi í blindum hroka leyft nokkrum mönnum að komast upp með að gera þjóðina gjaldþrota. Forseti okkar hefur hampað þessum mönnum og flogið með þeim í einkaþotum víða um heim. Skammarlegt og á ekki að viðgangast í þróuðu landi þar sem fólk er menntað upp úr skónum.
Ég tala nokkur tungumál og þrátt fyrir að vera komin yfir fimmtugt þá þori ég alveg að söðla um, selja mitt (ef hægt er) og byrja nýtt líf í öðru landi. Ég gæti jafnvel komist inn í skóla á erlendri grundu, veit um nokkra á mínum aldri sem hafa gert það.
![]() |
Ekki hægt að taka inn nýnema |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)