Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Það verður nú gaman

Að sjá hvernig Steingrími og Jóhönnu muni takast til að koma reglu á hlutina í þjóðfélaginu.  Vona að Steingrímur hafi dug og þor til að ýta við Seðlabankamönnum, fá lögum um 7 ára regluna breytt og koma að einum dulegum viti bornum hagfræðimenntuðum Seðlabankastjóra.  Einn stjóri ætti að duga fyrir 320.000 manna þjóð.
mbl.is Unnið áfram í kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Minn tími mun koma

Sagði Jóhanna forðum tíðum.  Skyldi hún hafa burðugleika til að fletta ofan af spillingu síðustu ára og færa þjóðinni vitneskju um hvaða níðingar komu þjóðinni á hausinn? - Fólkið í landinu hefur nú fengið ósk sína uppfyllta, stjórnin er farin frá.  Þetta er eins og með skilnað, léttir en þó söknuður vanans.
mbl.is Ásaka hvert annað um hroka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lögbrotin lán

Æi, ég er bara venjulegur borgari sem hef takmarkaða sýn inn í frumskóg lagaákvæða hvað má og má ekki.  Ég er samt viss um að þessir menn sofa rólegir og eru ekkert að velta sér upp úr hvað Jón og Gunna hafa mátt þola með þessum gjörningum þeirra.  Ég ætla að gera mitt til að fá það frá Kaupþingi sem þeir tóku frá mér eftir að hafa látið mig vegna misskilning starfsmanns hafa, þó ekki sé nema um 700.000 kr að ræða, en þær krónur muna mig  miklu þar sem ég er ein af þeim sem varð atvinnulaus á síðasta ári.

Siðblinda er ákveðinn sjúkdómur sem menn fæðast með eða læra og hlaða síðan í kringum sig skjaldborg af fólki sem ver það.

Hvað stór hluti almennings smitaðist af þessum vírus sl. ár?


mbl.is Lánin mögulega lögbrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afsögn

Loksins einhver sem axlar ábyrgð á sínum gjörðum.  Í mínum huga eiga slíkar manneskjur endurkomu inn í pólitíkina aftur.  Eða er Björgvin sá sem fórnað er af hærra settum ráðamönnum? - Allavega, Björgvin, ég tek slæðuna af fyrir þér.
mbl.is Björgvin segir af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veikindi

Þó svo ég sé ekki sammála þeirri stefnu sem höfð er í ríkismálum í dag þá eiga Geir og Ingibjörg sem manneskjur samhyggð mína og ég óska þeim góðs bata og vona að þau taki sér þá hvíld sem þau þurfa á að halda.  Það fer ekki saman streitufullt líf og að berjast við alvarleg veikindi.  Ekki vil ég vera í þeirra sporum.
mbl.is Geir: Kosið í maí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glundroði

Það ríkir glundroði á Alþingi í dag.  Glundroði sem er tilkomin vegna glýgju og blindu ríkisstjórnar og kannski líka stjórnarandstöðu (hafa þeir spyrnt verulega á móti?) í hruni bankanna í bland við erfiða kreppu á Alþjóðamörkuðum.  Við kjósum okkur fólk til að stýra landinu og hlustum á faguryrði þeirra og loforð áður en til kosninga kemur, við trúm því statt og stöðugt að þau munu stýra fleyinu á lygnum sjó og bregðast við af ábyrgð þegar á ólgusjó er komið.  En eins og við sjáum þá hafa margir innan ríkisstjórnarinnar tekið sjóveiki og eru engan veginn færir um að vera heiðarlegir og koma með það upp á yfirborðið það sem virkilega gerðist á milli ríkisstjórnar, bankastjóra Seðlabankans og útrásarvíkinganna.  Það er skömmin í þessu öllu að þegja sannleikann í hel.  Ég vil ekki lasta Ingibjörgu í hennar veikindum en menn verða að taka skref til baka og láta aðra um stjórnina herji alvarleg veikindi að manni.  Hefur hún þrek til að stýra flokknum sínum í gegnum aðrar kosningar? Ég treysti ekki Össuri því hinn opinberi maður (þekki hann ekki persónulega) virðist sleipur sem áll og ætlar að sitja á þingi sem ráðherra hvað sem kostar.  Það eru svona menn sem hafa úthrópað að satt ætti að segja en þegja svo og víkja undan þegar sannleikans er krafist.  Ég treysti nánast engum flokki lengur, Ögmundur og Steingrímur eru þekktir fyrir að öskra og ég veit ekki hvort þeir geti hætt því komist þeir í ráðherra stól....  Kannski á að kjósa þjóðarstjórn eða hreinlega kjósa fólk, en það væri kannski líka hrein fásinna.  Verð að viðurkenna vanmátt minn í því að geta yfirhöfðuð treyst einhverjum núna.  Mér er óglatt.
mbl.is „Allt kemur til greina"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dagsleyfið

Dagsleyfið 

Það var ekki laust við að hún væri of spennt til að geta klætt sig í kápuna og komið sér af stað. Mánuðum saman hafði hún ekki komið út fyrir landamörk hælisins nema í fylgd umsjónarfólks sem hafði farið með hana og nokkra aðra sjúklinga í bíó. Guð minn almáttugur, hvað átti hún að gera ein í strætó, ein meðal fólks sem ekki var geggjað eins og hún og hinir á hælinu. Hún var alveg viss um að allir myndu sjá það á henni um leið og hún gengi inn í vagninn að hún væri tjúlluð, brjáluð, geðveik, öðruvísi, rusl, píka, pussa ... óttinn var að æra hana og hendur hennar titruðu. Hana langaði mest af öllu að hlaupa inn á klósett og æla, æla minnimáttarkenndinni, setja puttana ofan í kok og krækja geðveikinni úr innyflunum á sjálfri sér ... rusl, píka, hóra ...

Farðu, farðu af stað, ekki hangsa, komdu, komdu. Rósa stóð þétt við hliðina á henni og hvatti hana óspart áfram. Iðaði öll á háhæluðu svörtu bandaskónum í svartrósótta kjólnum. Rósa var biluð, biluð að vilja fara svona klædd í strætó. Það gat enginn gengið í hælaháum svörtum bandaskóm og flegnum svartrósóttum kjól í gegnum háa snjóskaflana. Biluð, biluð, eins og bergmál hljómuðu þessi orð í eyrum hennar, æsandi tónarnir, gaddavírstónlist, brakandi hljóð og skær ljós. En hún hafði aldrei lent í neinni styrjöld nema styrjöldinni innra með sér. Bara séð myndir í blöðunum af fólki hlaupandi með brunnið holdið eftir að napalmsprengjur höfðu fallið á Vietnam. Biluð, biluð … svartir bandaskór sem dönsuðu trylltingslega á háum snjósköflunum … svartur gaddavírinn í hvítri mjöllinni og sundurtættir líkamar … gulur strætisvagninn á leið með hana í gasklefann en hún vildi ekki fara … vildi ekki deyja alveg strax.  

Rósa ýtti óþolinmóð við henni. Komdu, sagði hún, ekki missa af strætó. Komdu, ég skal halda í höndina á þér. Þú deyrð ekki á meðan ég er með þér. Ég skal deyja fyrir þig bara ef þú kemur með mér niður í bæ, ekki missa af strætó, komdu.

Úff, bara að taka eitt skref og koma sér í kápuna, ganga síðan hægum skrefum meðfram veginum sem lá að strætisvagnaskýlinu. Ekki taka vagninn þar heldur ganga að næstu stöð og þá myndi enginn fatta að hún væri kleppari. Rósa gekk með henni og sveiflaði mjöðmunum hægum hreyfingum. Rósa, af hverju ferð þú ekki í kápu? Er þér ekki kalt? Æi, hún var alltaf að gleyma þessu, Rósa var auðvitað löngu dauð og lá köld í hellinum. Það var afturgangan hennar Rósu sem gekk með henni og afturgöngum var aldrei kalt, þær nærðust eingöngu á orku lifandi fólks sem var næmt.

Það þótti flott að geta séð afturgöngur ef maður var ekki á hælinu. Margir gátu unnið sér inn mikinn pening með því að taka á móti skilaboðum frá hinum dauðu og koma þeim áleiðis til eftirlifandi. En ekki þeir sem voru á hælinu, ef þeir sáu afturgöngu þá fengu þeir sprautu í lærið og fóru að slefa. Þess vegna talaði hún aldrei um Rósu við nokkurn mann.

Gulur strætó, hálffullur af fólki. Svört sætin sundurskorin og krot á lúnum hliðum vagnsins. Hjartað var að springa og hugsanirnar flugu eins vængbrotnir fuglar út í gráan himininn. Það var langt síðan hún hafði verið svona hrædd og óörugg. Það var föstudagur og vagninn var hálffullur af fólki á leið heim í helgarleyfi. En ekki Gerður og nafnlausi maðurinn hennar í buxunum sem földu getnaðarlim hans sem níddist á Gerði í helgarleyfunum og gerði það að verkum að hún kom alltaf aum og bogin til baka.  Þau áttu sinn eigin bíl og þurftu ekki að ferðast um í gulum strætó.

Daufar skuggamyndir út um allt. Hálfdauðar manneskjur á leið í dagsleyfi huldar reyk, ekki vitandi að þær voru á leið í gasklefann. En það voru engir gasklefar á Íslandi, bara reykmettaðir strætisvagnar hálffullir af biluðu fólki á leið í leyfi.

Vagninn keyrði af stað og hún hafði fengið sér sæti aftast til að vera sem lengst frá samferðarfólki sínu. Hún hallaði sér upp að glugganum og andaði móðu á glerið. Í móðuna var hægt að teikna alls konar mynstur, jafnvel skilaboð til þeirra sem kæmu á eftir henni og settust í sama sæti og hún. Hún horfði í gegnum móðuna og yfir sjóinn sem hvíldi nánast hreyfingarlaus á flóanum. En sjórinn var ekki eins rólegur hann sýndist, undir niðri kraumaði í honum og hann beið eftir því að rísa upp og taka til sín þá sem týndu sér eitt augnablik.

Syngjandi sæll og glaður, til síldveða nú ég held..., gömul lumma hljómaði úr útvarpinu, argandi ljótt stef og ryðguð rödd fyllibyttu sem hafði týnst þegar sjórinn kallaði á hann. Sæll og glaður: draugar og forynjur, fifl og hórur … snú snú, hugsanirnar snerust í hringi eins og skopparakringla og hún var rugluð, náði ekki að festa hugsanirnar og líma þær saman þannig að þær mynduðu heila heilbrigða setningu. Allt sundurslitið eins og skrykkjótt aksturlag strætisvagnins.

Henni var flökurt eins og í gamla daga þegar þau keyrðu til höfuðborgarinnar að vestan og maginn snerist þúsund snúninga og grænt gallið vall upp úr henni … snú snú … fara í hringi, stoppa ekki efst á Laugaveginum heldur fara heilan hring og aftur til baka. Snúa við, fara aftur í lokað öryggið og hafragrautinn.

Rósa, sat róleg við hliðina á henni með filterslausa Camel á milli fingranna. Augun ljómuðu og barmurinn tifaði ótt og títt. Ekki rugla svona vitleysu, hvíslaði Rósa að henni. Láttu ekki snú snú hugsanir tefja þig, við eigum svo margt ógert í bænum. Þurfum að koma við á mörgum stöðum og hitta marga. Við förum út við Hlemm og göngum niður Laugaveginn. Skoðum í búðarglugga og endum svo á Borginni klukkan tólf.


Heimsóknir

Þessu get ég ekki verið sammála.  Við leggjum ekki fólk í einelti og hræðum úr því líftóruna þó svo ríkistjórn og þeirra fylgifiskar hafi gert okkur lífið leitt.  Ofbeldi gerir ekkert fyrir málstaðinn.
mbl.is Nafnbirtingin grafalvarlegt mál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mótmæli

Var þarna rétt fyrir sex í gær.  Flottur taktur sem var sleginn og augljóst að hiti er í fólki.  Spurning hvenær þeir sem sitja í ríkisstjórn átta sig á því að þeir eru ekki lengur velkomnir í ríkisstjórnina.  Sé eftir mínu atkvæði til þeirrar stjórnar sem nú situr og hefur hún glatað trausti sínu.  Það er lágmark að skýringar séu gefnar á því hvernig stóð á því að þeir leyfðu þremum bönkum að rústa heilu þjóðfélagi.  Alheimskreppa er ekki skýringin, það höfum við heyrt frá sérfræðingum. 
mbl.is Mótmæla aftur í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bólið

Þeir voru góðir þessir nýríku íslensku karlmenn, en núna hlýtur að draga úr hæfninni til brúks í bóli.
mbl.is Ríkir menn betri í rúminu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband