Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Þeir víki

Skelegg er hún Jóhanna.  Ég vona bara að það verði ekki of dýrt að láta bankastjórastrákana víkja.  Þeir eru fastir í sessi, sérlega einn þeirra sem ætti bara að vera heima, skrifa ljóð og bækur, ég held honum láti það best enda listamaður í sér.  Fyrir hinum tveimur fer lítið og ég sem illa læs á fréttir veit varla hvað þeir heita, Ingimundur og Jóakim.
mbl.is Seðlabankastjórar víki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jafnt kynjahlutfall

Nú er bara að sjá hvernig konur spjara sig sem helmingshluti af ríkisstjórninni og hvort þær stýra landinu eins vel og heimilinum.
mbl.is Tíu ráðherrar í nýrri stjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ný ríkisstjórn

Ég velti fyrir mér hverju hin nýja tilvonandi ríkisstjórn nái fram á 83 dögum.  Við vitum öll að það tekur alltaf lengri tíma að byggja upp en að brjóta niður.  Síðasta ríkisstjórn og hennar undaneldi tókst með sameiningu fárra útvaldra vel gefinna og jafnvel "siðblindra" auðmanna að koma þjóðinni það rækilega vel á kúpuna að við verðum vaflaust að fara að sauðsskóna fljótlega.  Ekki lifum við lengi á skuldunum sem búið er að koma okkur í.

Það skiptir mig ekki máli hvort tilvonandi forsætisráðherra sé samkynheigður eða ei, það eru verkin sem skipta máli.  Ég veit að það verður heit umræða um lesbíuna sem stjórnar landinu og mun vafalaust reynt að draga hana niður í svaðið vegna þessa.  Eitthvað í mér segir mér að Jóhanna sé sterk og sjálfri sér samkvæm og ég vona að hún búi yfir þeim styrk að geta leitt ríkisstjórnina áfram á veg heiðarleika, sjálfskoðunar og breytinga til hins betra, að það verði rannsakað hverjir voru ábyrgir fyrir hruni bankakerfisins og hvaða auðmenn í raun hafi stjórnað þjóðinni.

Nú er farin frá kona sem mér þótti á sínum tíma skelegg, gáfuð og framsækin.  Kona sem þorði að fara á móti straumnum en er nú orðin veikburða af setu með spilltri ríkisstjórn í bland við sín eigin veikindi.  Ég óska Ingibjörgu velfarnaðar og bata og hið sama óska ég Geirs -

 


mbl.is Ingibjörg á Bessastaði í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bíðum og sjáum til.  Landið er í einhverskonar limbói og ef VG og Samfylkingin undir leiðsögn Framsóknar geta stýrt betur en fráfarandi Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks, þá er ég ánægð.   En er þetta ekki sami grauturinn með öðru bragðefni og lit?


mbl.is Framsókn ver nýja stjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Yfirfærsla

Þeir (voru engar konur sem gerðu svona gjörning?) vissu hvað var framundan og komu sínu undan, ég segi nú bara helvítis pu....... . Ég veit svo sem að það er í eðli manneskjunnar og dýra að vilja bjarga sjálfum sér fyrst, svo þetta fólk hefur gert það eina í stöðunni fyrir sig þ.e. bjarga sér og sínum og skilja hina eftir á klakanum. 

Svo ef konan vill skilja við karlinn eða öfugt þá eignast þeir aftur helminginn af eignunum, þannig eru sifjalögin.

Þetta er svo sniðugt þar sem skilanefnd Kaupþing hafnaði okkar beiðni um að endugreiða það sem þeir tóku af okkur.

Ég ætla ekki að fara hamförum á lýsingarorðum og ýti í burtu verkamannagenunum í mér og held blótsyrðum fyrir innan eigin munn.

Takk


mbl.is Fleiri bankamenn skráðu eignir á ættingja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skref afturábak eða?

Núna fellur það á ættingja að fara að sinna sínum öldruðu foreldrum meir.  Verður þetta ekki bara eins og fyrir hundrað árum síðan þegar fjórar kynslóðir bjuggu saman undir einu þaki.  Börn fæddust heima og þeir eldri og sjúku dóu heima.  Atvinnuleysi fjölgar, tekjur minnka.... og þá er bara eitt, þjappa sér saman og læra gamlar venjur upp á nýtt.  Tekst okkur það?

Það er ekki lítið sem auðvaldið hefur á sinni samvisku og ríkisstjórnin líka.  Hver veit hvað Jóhönnu tekst að koma í gegn aftur, hún er dugleg í félagsgeiranum og hefur beitt sér fyrir minnimáttar.  Guð blessi nýja ríkisstjórn.   

Ekki hlakka ég til þess að verða ósjálfbjarga gamalmenni eða sjúklingur því ég er ekki ættstór.


mbl.is Deildum lokað á Landakoti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vextir

Við erum orðin nýlenduþjóð IMF og þeir hafa fengið stjórnina yfir landinu.  Við sem almenningur verðum að sætta okkur við atvinnuleysi, hækkun vaxta og verðbóta, óvissu um búsetu vegna vaxandi kostnaðar.  Okkur er sagt að taka þessu möglunarlaust þar sem Seðlabankastjórn ræður engu, Davíð ræður engu, ríkisstjórnin ræður engu og hver veit hvað komandi ríkisstjórn nær að ráða.  Erum við ekki bara í djúpum skít og þurfum við ekki bara að herða sultarólina, henda bílnum á haugana, stoppa í sokkana, taka slátur, segja upp sálfræðingnum og einkaþjálfaranum og bæta frekar við okkur ódýrum lyfjum sem deyfa okkur - þannig komust við kannski best út úr þessum andskota sem ríður á okkur.  Tek fram að ég er með flensu og heimsku og þess vegna þessi skrif ábyrgðarlaus og ekki við mig að sakast þó svo ég fari ekki rétt með hlutina.  Að þessu leyti er sama hálfkákið hjá mér og stjórnvöldum.
mbl.is Vildu lækka vexti en ekki IMF
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dýrin í skóginum

Það eru allir vinir á Alþingi og þau vernda hvort annað í kross.  Spyrjum að leikslokum. 
mbl.is Davíð undir væng Ögmundar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að sjálfsögðu

Ganga strax til kosninga þ.e. ef það er hægt og skemmir ekki fyrir - ég myndi vilja sjá ferskara fólk en það sem er búið að sitja í stjórnarandstöðu öll þessi ár.   Veit ekki enn með Steingrím sem ýtir í Geir og Ögmund sem er hávær.  Þeir eru einna helst farnir að líkjast mér í skapferli nema ég kann orðið að halda kjafti (ekki alltaf) og vera varkár með það sem ég þarf að passa.  Kannski geta þessir strákar staðið sig betur en D, F og S og komið öllu í VG lag.

En ég viðurkenni, ég veit ekki neitt.  Rek á reiðanum eins og restin af þjóðfélaginu.


mbl.is Fundað um stjórnarmyndun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ótrúlegt

En íslenskir auðjöðvar eru á svipuðu róli og frændi þeirra í Zimbabve, en hann er víst með fleiri en eina háskólagráðu.  Við ættum ekki að segja að dökku frændur okkar í Afríku séu vanþróaðir, það erum við hér heima á klakanum með fáa útvalda ríka sem stjórna og stýra og stela af okkur.  Nú vantar Hróa Hött til að gera þeim lífir grátt.
mbl.is Milljarðalán skömmu fyrir hrun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband