Voðaverk

Þetta er hræðilegt að lesa og hræðilegt að hugsa til þess að aldar séu upp stéttir manna sem hafa gaman afþví að drepa og veigra sér ekki við að skjóta gamalt fólk og færi, síðan er ekkert tiltökumál að skjóta móður með barna.  Karlmennirnir eru réttdræpir og er þeim ekki eirt.   Til að kóróna þetta allt saman er Guð settur inn í dæmið og er þetta allt gert með hans vilja.  Einkennilegur þessi Guð sem gefur mönnum leyfi til að drepa hvorn annan.
mbl.is Ísraelar frömdu voðaverk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Margir glæpir verið og eru enn framdir í nafni guðs.

Rut Sumarliðadóttir, 20.3.2009 kl. 11:18

2 Smámynd: Páll Jónsson

Held að þessi guðsómynd sé eitt af stærri vandamálum þessara þjóða þarna fyrir botni miðjarðarhafs, sama hvaða nafni hann nefnist í hverju landi.

Páll Jónsson, 20.3.2009 kl. 12:41

3 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Þeir spyrja varla guð um leyfi áður en þeir kasta sér á blóðvöllinn.

Hildur Helga Sigurðardóttir, 20.3.2009 kl. 23:41

4 Smámynd: Páll Jónsson

Útskýrðu... Er það ekki nokkurn veginn nákvæmlega það sem þeir gera?

Páll Jónsson, 21.3.2009 kl. 13:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband