17.2.2009 | 12:20
Eymd og hagnaður
Ég ætla að ég verði ekki elt uppi fyrir að hafa skoðun á glæpastarfsemi sem tengist fíkniefnahagnaði. Þessi andskoti hefur alltaf verið til frá örófi alda. Brugguðu menn ekki hér á öldum áður? Á mínum blómaárum var kannabisefnum smyglað til landsins í mismunandi stórum skömmtum - ég þorði aldrei að flytja inn eða út nokkurskonar efni - menn drekka áfengi, reykja ópíum- eða kannabistengdefni, sniffa af bensíni, nota læknadóp og þar frameftir götum.
Málið er, þarna úti eru vel menntaðir menn með viðskiptavit í bland við brenglaða siðferðisvitund sem nýta sér veikleika þeirra sem eiga erfitt með að lifa daglegu lífi án tilkomu einhverrar vímu. Þetta er ekki hann illa greindi Jón eða ruglaða Gunna sem skipuleggja starfsemina, þau eru bara burðardýrin sem taka á sig fangelsisdómana.
Glæpastarfsemin er þaulskipulögð af vel gefnu, vel menntuðu fólki sem sjálft kemur ekki nálægt noktun þessara efna þ.e. ef ég hef getið rétt í eyðurnar.
Ég þakka fyrir að hafa ekki snert sopa af vínanda í tæp 30 ár, ekki fengið mér í haus og ekki lagst út í skipulagðan innflutning eins og ég veit að sumir edrú vel gefnir skammlausir fíklar hafa gert.
Fíkniefnahagnaði ráðstafað hér | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:12 | Facebook
Athugasemdir
Vegna sögunnar ætti okkur að vera ljóst að það verður aldrei komið í veg fyrir þennan fjanda, afsakið orðbragðið. Við verðum að snúa okkur að öðrum lausnum en auka eftirlit til að draga úr neikvæðum áhrifum fíkniefna á samfélagið.
Leyfa sölu og auka forvarnir er eina vitið, að mínu mati.
Jón Finnbogason, 17.2.2009 kl. 12:33
Afnema bara lögbannið. Það gerði gæfumuninn að afnema áfengisbannið, það sama gildir um önnur fíkniefni: þú losnar við mest alla skipulagða glæpastarfssemi enda er hún oftast fjármögnuð með fíkniefnasölu eða snýst um hana, það verður haft eftirlit með efnunum sem eru seld og þá veit fólk að það er að taka inn alsælu en ekki eitthvað bland í poka þegar það kaupir sér E-töflu, það væri hægt að skattleggja efnin og þannig hagnast af þeim hundruð milljónum sem menn eru að velta í þessum viðskiptum. Fikniefnavandinn er heilbrigðisvandamál ekki löggæsluvandmamál.
Zaraþústra, 17.2.2009 kl. 12:45
Vændi er komið til að vera á íslandi það er staðreynd að menn sem fara erlendis
kynnast konum í Tælandi (Phuket sem er bara 1 stór vændisstaður ) sem selja sig og koma með þær hingað
þar sem þær giftast karlinum enn samt halda þær áfram í vændi
auk þess eru þetta oftast konur með krakka sem engin vill í Tælandi
síðan hefur sama lið verið að flytja inn ættingja sem eru ekkert skyldir þeim
gegn greiðslu og ekkert er gert . auk þess hafa karlmenn og konur frá
Asíu enn verið gift þegar það giftir sig á íslandi með aðstoð túlka sem þýða pappíra
rangt gegn greiðslu . þá er komin upp sú staða sem Tvíkvæmni og er næstum
orðin lögleg á íslandi vegna þessara atburða .
annars er hægt að laga þetta með aðstoð túlka frá öðru landi sem eru ekki að
falsa opinbera pappíra
TraderX (IP-tala skráð) 17.2.2009 kl. 15:58
Það mundi skerða tekjur glæpasamtaka um sirka 50-60% að lögleiða fíkniefni og þau mundu flest öll hrynja,gengum mundi fækka gífurlega því þau gætu varla hagnast nema á vopnasölu og innbrotum sem er bara smotterí á móti fíkniefnagróðanum.
Alexander Kristófer Gústafsson, 17.2.2009 kl. 17:37
Sammála, Alexander! Hef lengi talið líklegast að áróður um síherta löggjöf gegn fíkniefnum séu fjármagnaður með fíkniefnagróða. Rökrétt ályktun, þar sem seljendur "hörðustu" efnanna græða mest á banni. Við þekkjum kenningu um að slíkir "Barónar" standi að baki aðförinni að Kristjaníu í Köben.
Hlédís, 17.2.2009 kl. 23:06
Samála Hlédísi og Alexander.
Ólöf de Bont, 18.2.2009 kl. 10:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.