Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
10.1.2009 | 11:29
Ó þjóð
Ég hvet ykkur öll til að lesa blogg Láru Hönnu og mæta á Austurvöll til friðsamlegra mótmæla í dag.
http://larahanna.blog.is/blog/larahanna/
10.1.2009 | 11:13
Spilling
Tilboð Haga gerði ráð fyrir staðgreiðslu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.1.2009 | 12:17
Gaza - útrýmingabúðir
Þegar ég var lítil fyrir 50 árum eða svo var mjög takmarkaður fréttaflutningur og tók það langan tíma fyrir fréttir að komast áleiðis. Lífið þá virtist ekki eins flókið og maður varð ekki eins var við hið illa. Sem barn tókst mér að lifa í þeirri staðföstu sannfæringu að lífið hefði kærleiksríkan tilgang og það væri fátt um illa vætti í heiminum. Það var gott að vera barn þótt einhver fátækt væri hér á landi, gott að því leyti að ekki vældi í sírenum og að búast mætti við sprengjuregni hvenær sem var, en illskan var til en langt í burtu.
Núna lesum við um illa meðferð á heilum þjóðum. Fólk er lokað inni á litlu svæði og stráfellt. Engin miskunn. Saklausir borgarar eru stráfelldir og við fáum myndrænar fréttir um það í gegnum vefmiðla. Það tekur í hjartað að geta ekki gert neitt nema að bera uppi mótmælum við aðgerðir af því tagi sem Ísrael beitir herteknu þjóðinni Palestínu. Ég á ekki orð yfir að þjóð sem sjálf þurfti að ganga í gegnum holocaust og útrýmingar í síðari heimstyrjöld. Mig grunar að ríkisstjórnir í hinum vestræna heimi hafi einhvern hagnað af þessu öllu. Hverjir selja vopnin?
Sprengdu hús fullt af fólki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.1.2009 | 09:11
Helv...
Helvítis fokking fokk sagði 4ja ára dóttursonur minn við kvöldverðarborðið í gær meðan hann stakk upp í sig matarbita. Allir viðstaddir fjórir fullorðinir og ein 7 ára hnáta sprungu af hlátri og í kjölfarið með hláturshiksta var reynt að siða þann litla til og árétta við hann að svona ljótt talaði maður ekki.
Það er ýmislegt sem þessi börn læra af kreppunni og mótmælunum hér heima. Helvítis fokking fokk og með klút fyrir vitum sér, svona læra litlu börnin af okkur stóru.
Ég ætla að halda stóískri ró í dag og láta ekki fokk æsa mig upp enda orðin of gömul og þurr....leg fyrir það.
Einhver benti mér á það að hér á blogginu, að stólpípa myndi laga öll mín vandamál. Kominn tími til enda hin alvarlegasta tregða í hausnum á mér. Fara þeir þá í gegnum nefið?
Ég skildi ekki alveg Ingibjörgu Sólrúnu í gærkveldi, en verð að segja að konan er bráðvelgefin og sleip. Einnig afskaplega klók við að koma sér hjá flóknum spurningum. Svona utanríkisráðherra vilja þjóðir, gáfaða, sleipa og þá sem kunna að þjálfa með sér tilfinningadeyfð gagnvart öllum þeim hörmungum sem ganga á í heiminum.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
7.1.2009 | 12:24
Farsi
Erlendir bankar með veð í kvóta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.1.2009 | 11:05
Rannsókn
Hollendingar hafa alltaf verið varir um sig í peninga- og markaðsmálum, en þeir gætu hafa misst sig líka í græðginni. Þekki einn slíkan athafnamann í Hollandi sem beitti öllum ráðum til að blekkja íslenska athafnakonu en varð undir í baráttunni.
Íslenska stjórnin getur ekki hafa verið svona blind að þeir vissu ekki í hvað stefndi. Menn vita það í tíma hvernær blankheit og erfiðleikar bresta á, allavega þeir sem reka fyrirtæki og lánastofnanir. Vorum við hinn íslenski almenningur látinn fljóta sofandi að feigðarósi meðan þeir sem áttu að gæta okkur litu í hina áttina?
Hollendingar rannsaka vöxt Icesave-reikninganna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.1.2009 | 10:56
Málarekstur
Málarekstur mun hugsanlega leiða til skaðabótamáls | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.1.2009 | 21:59
Bjarni Ármanns
Kom sem nýr maður í Kastljósið í kvöld, hármeiri og án gleraugna. Er hann að reyna að falla inní fjöldann? Hann var mjög áberandi sem ungur, vatnsgreiddur gleraugnagámur sem kunni að draga að sér fé, meee eður ei.
Ég veit ekki hvað ég á að segja um hans framkomu í Kastljósinu og játningar hans um aðild að banka- og landshruni. Auðvitað fékk ég kökk í hálsinn, hvað annað þegar menn játa misgjörðir sínar og eru tilbúnir til að greiða til baka það sem þeir fengu til sín. Útskýringar hans voru skýrar og seldi hann manni söguna alveg frá A-Ö, eins og hann gerði meðan hann var bankastjóri og útrásarvíkingur. Ég ætla honum samt hið góða, að hann virkilega sjái að sér og vilji bæta fyrir mistök sín, hann er ekki eins hortugur og hinir sem afsaka sig bak og fyrir og kenna öðrum um.
Kannski er það svo að hans 370 milljónir jafngildi árslaunum mínum sem eru núna lágmarkslaun sem atvinnuleysingi og flestir vita að eru undir 1.5 milljónum? Það má vera að þessar milljónir séu smáaurar í hans vasa.
Ef allir þessir drengir kæmu nú með ca. 500 milljónir til baka þá væru þeir að koma með 1.5 milljaðr til baka, þessir 30 strákar.
Mitt mál hjá Kaupþing. Ég heyri frá lögfræðideildinni hvaða afstöðu þeir ætla að taka varðandi að hafa látið okkur hjónin endurgreiða 700.000 af okkar eigin féi vegna þess að sjóðstjóri lét okkur hafa peningana eftir lokun sjóðs. Ég á ekki von á að lögin séu okkur hliðholl, við erum almenningur.
Endurgreiddi 370 milljónir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.1.2009 | 11:35
Ísrael
Ég les, sé og heyri um þessar hörmungar sem eru í gangi fyrir botni Miðjarðarhafs. Þjóð sem einu sinni var hundelt og stráfelld og nánast útrýmd, virðist nú ganga fram af sömu hörku og þeir sjálfir upplifðu í seinni heimstyrjöldinni. Þá eins og nú eða réttara sagt rétt áður en Hitler trylltist voru gyðingar gerðir útlægir úr sínum heimahögum, þá með samþykki Evrópskra þjóða - stjórnir landanna og hinn almenni borgari (fyrir utan nokkrar hetjur) horfðu til hliðar meðan gengið var að fámennri þjóð og hún nánast murkuð út.
Ofboðslegur ótti hlýtur að liggja hjá þessari smáþjóð (ríki gyðinga er nú ekki stórt landfræðilega séð) sem í skjóli stórveldanna hertekur heila þjóð og kemur henni fyrir í rosafangelsi, einangrar hana og stráfellur hina saklausu meðan þeir sem stýra "helförinni" sitja varðir í sínum byrgjum og spila með ástandið eins og góðir skákmenn.
Maður hefur vonað í áratugi að þessum átökum myndi linna, að menn sæju að sér og hættu þessum byssuleik. Nú hafa verið aldar upp tvær kynslóðir sem þekkja ekkert annað en styrjaldarástand skv. því sem maður les í blöðum og hatrið fær að blómstra. Menn geta ekki hætt að henda sprengjum á hvorn annan og þetta er orðið að þvílíkri hringrás heimskulegra athafna að maður gapir.
Þrátt fyrir kreppuna hérna heima þá þakka ég fyrir þessa fámennu þjóð sem býr á eyju langt út í Atlandshafi þar sem engar styrjaldir hafa verið háðar síðan á miðöldum. Ég er nýbúin að borða ríkulegan morgunverð eftir letisvefn á sunnudegi og engar sprengjur eða árásir hafa truflað mitt líf í dag.
Ég bara bið og vona að vargöld herji ekki á okkur í framhaldi af græðgisvæðingu og stuldi fámennra einstaklinga sem hafa fengið að rúa landið okkar inn að skinni.
Framganga Ísraels fordæmd | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.1.2009 | 12:25
Offita
Nú mega foreldrar fara að skammast sín. Rannsóknir sýna að valdajafnvægi á heimilum hafi raskast og að litla fólkið sé farið að ráða ríkjum. Foreldrar lifa í afneitun og þeir tekjuminni stinga höfðinu í sandinn. Ég veit ekki betur en að ég hafi séð fleiri feita ríka karla en tekjuminni vörubílstjóra! - Er Siggi í Kaupþing ekki fjallmyndarlegur með bollulega vanga? - Hinn forstjórinn er hinsvegar eitt mjótt strá, þannig að hann hefur verið rétt upp alinn - Snorri mótmælavörubílstjóri er grannur enda þénar hann voða lítið. Fita er í dag söluvara hvort heldur það sé í stórmörkuðum eða á líkamsræktarstöðvum þar sem einungis þeir tekjumeiri geta hreyft sig í takt við aðra milla.
Ég er lágvaxin bolla en það er ekki látinni móður minni að kenna né heldur litlum tekjum þegar ég var barn. Maturinn þá var hreinlega einfaldur og útivera mikil. Mæður heima og feður sem sváfu á bekk í hádegishléinu í korter.... og svo nenni ég ekki hlaupum á bretti til að grenna mig. Það voru aurarnir sem fituðu mig og öll unna matvaran, tímaleysið og sjónvarpið.
Ég þekki bústin börn vel efnaðra foreldra og grönn börn tekjulitlra foreldra. Í mínum eyrum (augum) er svona fréttaflutningur alger þvæla - en ef hún er ekki þvæla og á sér einhverja stoð, Guð varðveiti þá yngri kynslóðina á komandi ári í tekjuminna landi, því nú munu öll börn verða akfeit og óalandi heimafyrir. Heil sé þér litla manneskja sem öllu ræður á þínu heimili.
Óöryggi foreldra stuðlar að offitu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)