Hagfelld

Hvað þýðir hagfelld? - Ég er svo rússuð af terpentínu eftir málun í morgun að heilinn á mér neitar að skilja þetta orð.  Er ekki bara verið að segja okkur að við séum í vondum málum og stórskuldug?  Vondu fréttirnar eru klæddar í falleg orð svo maður rjúki ekki bara sísona upp og verði brjálaður.  Annars má ég vera ánægð, seldi málverk í kreppunni í morgun og ég sem er ekki þekktur málari, það kalla ég nú hagfellda gleði! Úps, fattaði allt í einu hvað maðurinn á við, það er þegar hagur landsins fellur - hagkerfisfall.
mbl.is Hagfelld niðurstaða í augsýn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Ég hef ekkert verið að sniffa en skil þetta ekki samt.

Til hamingju með söluna, ekki slæmt í kreppunni!

Rut Sumarliðadóttir, 23.3.2009 kl. 13:22

2 identicon

Skilur einhver Steingrím?  Svavar Gestsson formaður viðræðunefndar.  Hvílík móðgun.  Agnes mætti þjarma meira að þessum mönnum

Baldur (IP-tala skráð) 23.3.2009 kl. 13:29

3 Smámynd: Þórarinn Sigurðsson

Ef hann væri með blátt bindi þá slyppi hann ekki svo billega frá þessu, því get ég lofað. Magnað hvað fjölmiðlar eru hlutdrægir -- jafnvel hinn svokallaði auðvaldsmiðill, Mogginn, virðist ekki hafa mikinn áhuga á að gagnrýna ríkjandi öfl nema þau séu hægrisinnuð :P

Þórarinn Sigurðsson, 23.3.2009 kl. 13:46

4 identicon

 Já, ég tók líka eftir því hversu mikla trú Agnes hefur á Steingrími og Svavari, það sér það hver heilvita maður að svona hlutdræg fréttaumfjöllun er óásættanleg!  Davíð blábindungur var kjöldregin af Agnesi við hvert tækifæri og svo er Steingrími klappað  á bakið og því sem næst þökkuð vel unnin störf.  Agnesi er sennilega Vinstri-Græn!

Bjorn Jonasson (IP-tala skráð) 23.3.2009 kl. 14:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband