Gáttuð

Það er nú að koma berlega í ljós að þeir sem ýtt hafa á kreppubáruna séu vel menntaðir sérfræðingar sem voru í bindileikjum þ.e. hver var sniðugastur með bundið fyrir augun og með teninginn eina að vopni.   Af aurum verður maður api og af völdum fúll í skapi.

Ætli menn læri nokkuð frekar nú en af öðrum kreppum sem hafa dunið yfir.  Manísk bjartsýni er svo stutt undan og mönnum (homo sapiens þ.e. konur/karlar) líkar oflætið sem fylgir því að skjótast upp á bjartan stjörnuhiminn. 

Dreymdi einmitt áðan að ballið væri aftur byrjað og núna væræu hraðfara hlaupastigar í verslunum og til þess að menn geti skotist fljótar á milli deilda voru mjúkir stökkpallar á milli hæða... eitt var þó skrýtið, það voru bara fáeinar vörur sem voru til sölu, allt hinn var uppbónað umhverfi.


mbl.is Jafnvel sérfræðingar eru gáttaðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband