13.12.2008 | 23:50
Hótaði hún
Hverju er hægt að hóta? Er ekki allt að fara til fjandans á tímum þessarar stjórnar sem margir kusu í síðustu kosningum. Ég hef svo sem enga skoðun á Ingibjörgu, veit bara að mér hefur hún fundist skelegg, þung til augnana og með góð rök. Þau eru ólík Geir og Ingibjörg. Maður veit ekki hvar maður hefur Geir, hann er í svo góðum felubúningi. Ég get samt alveg trúað Ingibjörgu að kasta sprengjunni þannig að gengið verði til kostninga á næsta ári og að eitthvað róttækt og viturlegt gert í þjóðmálum.
Hótaði formaður Samfylkingar stjórnarslitum? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þetta er leið Samfylkingarinnar til að halda andlitinu ef svo má að orði koma.En inní Evrópusambandið höfum við ekkert að gera.
Númi (IP-tala skráð) 14.12.2008 kl. 00:07
er ekki Ingibjörgu bara farið að langa að vera Forsætisráðherra,og hafa Steingrím með sér það verður gaman að sjá það,ég held að það sé nú ekki eins mikill kraftur í Sollu eins og allir héldu,hún átti að barga nánast öllu ef hún kæmist í stjórn en hvað liggur eftir Samfylkinguna?
greta (IP-tala skráð) 14.12.2008 kl. 00:16
Númi, hefur einhver flokkurinn á Alþingi núna almennilegt andlit á bak við grímuna. Ég hef ekki kynnt mér almennilega kosti og galla þess að ganga í Evrópusambandið, en erum við ekki of fámenn þjóð til að halda í eigin gjaldeyri og geta hvorki farið lönd né leið þegar ráðamenn og útrásarvíkingar hafa sett almenning á vonarvöl? Gréta, ég held að Ingibjörgu langi ekki endilega að verða forsætisráðherra. Mín skoðun er sú að þetta hafi verið kona með hugsjónir og kannski hafi hún hug á því að verða forsætisráðherra, sé ástæðan þar á bakvið eldhugur að geta bjargað þjóðinni og komið henní á réttan kjöl aftur. En rétt er það, þjóðin hefur ekki blómstrað í skjóli stjórnar Samfylkingar og Sjálfstæðismanna. Björn, mig grunar að þú gætir haf rétt fyrir þér... ég er í einhverju völvuástandi í dag.
ólöf de Bont (IP-tala skráð) 14.12.2008 kl. 10:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.