10.4.2009 | 15:33
Ömurlegt
Hvað við erum spillt og gráðug og ekki virðist það batna eftir því sem ofar dregur menntunar- og stjórnháttarstiginu. Ég er ekkert að undanskilja sjálfa mig enda refur mikill og dreg á eftir mér þungan syndarpokann. Stjórnmálaflokkarnir eru engar fyrirmyndir og höfuðsyndirnar hafa synt beint inn í hjörtu manna. Svo er það undarlegur andskoti hversu auðvelt það er að ljúga og horfa beint í augu manns meðan það er gert.
Skyldi mér einhverntímann batna af syndugum hugsunum og athöfnum. Ég býð mig fram til næstu kosninga og opna fyrir syndarpokann - ég fengi ekki eitt atkvæði ef ég segði satt frá :-)
Ömurlegar fréttir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Ég er búinn að velta því fyrir mér hvað ég ætti að gera við atkvæðið mitt,þú ert búinn að redda því.::::1,atkvæði frá Núma til þín,skora á aðra að gefa þér atkvæði hér á blogginu. Svo bara að hella sér í pólitíkina.Þú værir stoð mikil hverjum flokki sem er en helst ekki(xd),gangi þér vel í atkvæðasmöluninni.
Númi (IP-tala skráð) 10.4.2009 kl. 16:14
Hæ Númi, ég bara brosi í öllu þessu volæði. Ég missti nú einu sinni bílprófið vegna ölvunaraksturs og komst einu sinni í handjárn. Ég hef líka ótrúlega háværa rödd þannig að ég held að salurinn myndi nú tæmast kæmist ég í pontu. Tek það líka fram þar sem ég er lágvaxin að það myndi rétt glitta í litaðan rauðan koll sem rifist út í loftið. En takk fyrir atkvæðið
Ólöf de Bont, 10.4.2009 kl. 16:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.