4.2.2009 | 20:03
Sandkassaleikur
Það tekur í hausinn á manni þegar krakkaskrattar eru að rífast í sandkassa, ekki síst ef kassinn er með þaki sem rifnar af. Ég var búin að gleyma mínum eigin fráhvarfseinkennum en ég held að þau séu að rifjast upp hjá mér núna. Myndarlegur hópur á Alþingi, man ekki eftir svona mörgum í salnum áður og flestir með fúlan svip nema elsku Steingrímur sem glotti út í annað, loksins búinn að fá óskum sínum uppfyllt.
Væri bara hægt að fá alveg nýtt Alþingi nýþvegið upp úr Ajaxi..... við sitjum í fúlum grautarpotti af úldnu slátri.
Mögnuð fráhvarfseinkenni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 5.2.2009 kl. 07:35 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.