Vaxtamunur

Ég  labba með bakpoka í lágvöruverslun.  Fer í strætó niður í bæ.  Tek hverja krónu sem ég á og borga inn á höfuðstól íbúðarláns.  Lita mitt gráa hár sjálf og fæ heimaklippingu.  Læt mig ekki dreyma lengur um ferðir utanlands.  Tek með mér samferðalinga þegar ég fer í mitt sumarfríi norður og næ þannig bensínkostnaðinum niður. 

Læt mig ekki detta í hug að sparnaður færi mér eitthvað öryggi í náinni framtíð.  Allt þetta í boði fárra "ógæfumanna" eins og Steingrímur J. sagði.  Nú hefur tekið við vinstri stjórn og almenningur er kominn í stofufangelsi.

Ég ætla samt ekki að kvarta því ég hef það betra en þorri fólks á Íslandi. 


mbl.is Vaxtamunurinn eykst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Þegar horft er yfirr hjólhýsa-fellihýsa-stórjéppa-mannfjölda ástandið á fiskidögum á Dalvík veltir maður fyrir sér...

Vafalaust hafa einhverjir á Íslandi það skítt...en hvaða útlendingur sem sér þúsundir jéppa, risahjólhýsa og annað í þessari almenninghátíð trúi því að hér sé kreppa. ?

Aldrei hefði mér dottið í hug að það væru til svona mörg hjólhýsi á Íslandi og ég fullyrði...enginn þeirra sem hér er kom með strætó.

Jón Ingi Cæsarsson, 8.8.2009 kl. 11:50

2 Smámynd: Ólöf de Bont

Jón, fólk er að lifa á leyfunum.  Það er hægt að hafa það skítt í kastala.  Margir af svo kölluðu ríkustu fólki heims hafa ekki átt boru fyrir rassinn á sér...

Ólöf de Bont, 8.8.2009 kl. 17:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband