Spilling

Manni fallast hendur.  Meðan almenningur sér fram á mjög erfiða tíma eru strákarnir með peningana enn að leika sér með hrókeringar á fyrirtækjum.
mbl.is Tilboð Haga gerði ráð fyrir staðgreiðslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég segi fyrir mína parta að á meðan fólkið í þessum fyrirtækjum heldur vinnunni og hægt er að halda batteríinu gangandi þá skiptir ekki öllu máli hver á hvað.

Sindri (IP-tala skráð) 10.1.2009 kl. 11:53

2 Smámynd: Ólöf de Bont

Það er satt hjá þér Sindri, það er þökk fyrir hvert starf sem ekki tapast.  En það eru líkur á að fleiri störf muni tapast og að launamunur verði töluverður milli starfsheita.

Ólöf de Bont, 10.1.2009 kl. 12:16

3 Smámynd: Ingvar

Hættum að versla í Bónus og Hagkaup. Þannig höfuð við einhver áhrif á spillinguna og störf þessara glæpamanna.

Ingvar

Ingvar, 10.1.2009 kl. 13:26

4 Smámynd: Ólöf de Bont

Verð nú að vera smá sammála Stefáni þó svo ég hafi ekki verið honum sammála um margt hér í gamla daga, en það látum við liggja á milli hluta.  Það voru ósvífnir athafnamenn sem söfnuðu að sér flestum fyrirtækjum og ég verð að játa hlutdeild minni í þeim gjörningi því ég keypti hlutabréf í sumum þeirra og þeim sjóðum sem um þau voru stofnaðir.  Litla fátæka stelpan að vestan hélt nefninlega að stórar fúlgur í banka myndi auka á lífshamingju hennar en svo varð ekki.  Minn hugsunarháttur var á jaðrinum að vera hættulegur minni eigin geðheilsu, ekki talandi um þegar ég sjálf var atvinnurekandi, freistingin knúði oft dyra.  Það er fjölskyldan, vinir og annað fólk sem eykur á hamingju manns og líka lítil fötluð börn sem eru manns eigin bestu kennarar - takk fyrir þá hlutdeild í lífi mínu Stefán.

Ólöf de Bont, 10.1.2009 kl. 18:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband